Færslur: 2007 Júlí
07.07.2007 16:29
Ekki gott en samt ekkert svo slæmt.
Já og þegar ég lenti vélinni þá fór eitthvað úrskeiðis og hún sat á stélinu á ég var allveg viss um að hún væri brotin eða eitthvað sem til allrar hamingju var ekki þegar betur var að gáð. Hún sat þá bara á stélinu því að dekkjastellið var laust eða réttara sagt var þilið inn í henni sem heldur dekkjunum laust og líka fyrir mótorinn sem er ekki gaman en ekkert brotið sammt. Þannig að það er þá bara að fara að líma aftur og betur og þetta lím er ekki gott eða ég hef þá ekki blandað það nógu vel. Ættla að gera við hana í kvöld og setja bara vel að herði út í límið, já þetta lím er s.s tveggja þátta samsett úr einhverju sennilega bara lími en stendur samt ekki glue á því og svo hardner eða herðir og verð þá bara að setja vel af herði eins og hrannar sagði mér bara að gera.
Ég ættla samt að fara í loftið á morgun því að það er spáð góðu veðri held ég.
En ég ættla að segja þetta gott er að fara á Ísland - Danmörk á Akureyrarvelli á eftir Oldboys og bara ÁFRAM ÍSLAND og auðvitað ÁFRAM UMFNARFI.
Kveð að sinni.
Narfi.
03.07.2007 22:13
Ekkert flug. :'(
Ég hef ekkert flogið síðan á laugardaginn og ég ættlaði að fara að fljúga í gær en gat það ekki vegna vinds sem er allveg óþolandi. Þetta var ekki eða jú kanski pínu hafgola en svo breittist það bara í pjúra norðan átt sem ég þoli ekki eða jú það er allt í lagi að það sé smá vindur smá gola en rok I hate it. Og það var sama sama sagan í dag. Ef það verður ekki gott veður á morgun þá fer ég í ennþá meiri fílu.En svona er þetta bara með flugið að það er ekki alltaf hægt að fljúga.
En ég er búinn að spreya hana meira vélina mína núna er hún grá með dökkgráum blettum á, ekkert smá flott eða það fynnst mér allavega. Set myndir af henni þannig inn seinna.
Við Hrannar ættlum að hafa sýningu á hátíðinni þannig að ég hvet alla til að mæta upp á flugvöll um hátíðina, en tímasettningin er ekki komin á hreint en það verður sýning eða já ef veður leifir. (Þetta veður er allveg að fara í mig).
Ég segi þetta gott í bili ég heiti Narfi Freyr Narfason og ég kveð að sinni.
01.07.2007 19:47
Jómfrúarflug. 1 júlí 2007.
Ég fór fram á mela í eyjafjarðar sveit í dag og flaug jómfrúarflug á Ready 2 vélinni minni s.s nýu vélinni minni því að hin er ónýt en ég verð bara að seigja eins og er að það er betra að fljúga þessari vél heldur en trainernum. En já ég tók að vísu ekki fyrsta flugið eða jú ég tók við þegar hún var komin í loftið því að ég þorði ekki að taka á loft í fyrsta skipti upp á að setja hana bara strax niður því að það var svo hvasst að það hálva væri nóg.
Þegar ég var að fljúga í norður (það var s.s norðan átt) þá fór ég nú ekki með hana neitt voða hratt bara rétt í hálfri gjöf eða eitthvað því að þegar ég fór svo í beigju þá fauk hún til hliðar í beigjunni því að hún tók svo mikinn vind á sig og fauk líka áfram í suður.
En svo í öðru flugtaki þá tók ég nú á loft sjálfur en lenti aldrei því að það var svo hvasst að þegar ég sá að lendingarna voru erfiðar hjá Gaua sem er að hjálpa mér við að fljúga svona rétt í fyrsta skiptið þá áhvað ég nú bara að hann skildi sjá um þær því að ég hefði nú bara eiðilagt hanan strax í fyrstu lendingu en ég held að það eigi að vera gott veður á morgun svo ég ættla að fara að fljúga á morgun ntk. 2 júlí 2007. eftir mat. Bara svona ef einhverjir sem lesa hérna inná hafa áhuga. En ég fer að segja þetta gott í bili.
Heyrumst síðar.
- 1
